Þjóðin styður ljósmæður

Þjóðin styður ljósmæður
Austurvelli, 5. september kl. 12.15

Verkfall ljósmæðra er skollið á. Ríkisstjórnin axlar ekki ábyrgð og gerir þar með yfirlýsingar og fyrirheit að engu. Stjórnarsáttmálinn er marklaust plagg. Þarfir fæðandi kvenna skipta ekki máli og störf ljósmæðra lítils virði.

Þó málið varði fyrst og fremst fæðandi konur og hið nýja líf sem þær bera í skauti sér, þá snúast störf ljósmæðra um framtíð þessa lands í heild sinni. Ekkert er mikilvægara en endurnýjun þjóðarinnar. Til að hún geti orðið með eðlilegum hætti verður að tryggja þjónustu ljósmæðra nú og um aldir alda.

Ljóst er að þjóðin stendur með ljósmæðrum. Kennarar, hjúkrunarfræðingar, læknar og flugfreyjur hafa sent frá sér stuðningsyfirlýsingar, auk fjölda félaga- og hagsmunasamtaka. Fram til þessa hafa konur á barneignaraldri verið í framvarðarsveit stuðningsfólks sem er eðlilegt. Nú er þó svo komið að þjóðin öll verður að láta í sér heyra. Öll höfum við fæðst. Mætum á Austurvöll kl. 12.15 og styðjum við bakið á ljósmæðrum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er þess virði að listi verði gerður á netinu til stuðnings ljósmæðra. Hvet feður til að sýna sig, verðandi pabba, því þeir eru í lífsábyrgð fyrir börnum sínum. 

ee (IP-tala skráð) 4.9.2008 kl. 15:41

2 identicon

Ef til vill betur að skrifa í lífsábyrgðarhlutverki sem feður barna sinna

ee (IP-tala skráð) 4.9.2008 kl. 15:42

3 Smámynd: Eydís Hentze Pétursdóttir

ee., feður verða að vera virkir í þessu líka. Þetta snýst ekki bara um áhyggjur kvenna af stöðu málu, þetta varðar alla þjóðina.

Eydís Hentze Pétursdóttir, 4.9.2008 kl. 16:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Eydís Hentze Pétursdóttir

Höfundur

Eydís Hentze Pétursdóttir
Eydís Hentze Pétursdóttir

Ég starfa við fæðingahjálp þá er svipar til þeirrar er doulur og birthcoaches veita. Kannski er best að titla mig sem Fæðingacoach. Ég útskrifaðist úr námi Miu Jiaya, www.foedselscoach.dk sl. sumar. Mia Jiaya ásamt Binnie Dansby www.ecstaticbirth.com , Michel Odent og Jeannine Parvati Baker www.birthkeeper.com eru þeir aðilar sem ég hef hlotið einna mesta kennslu af.  Stærstu lærimeistarar mínir eru þó börnin mín, Marteinn, Regína og Katrín. Ég er einnig svo lánsöm að hafa hann Gumma minn mér við hlið í flestu sem ég geri. Hann er sambýlismaður minn, faðir barna minna, besti vinur minn og andlegur félagi. Við búum í Keflavík, nýlega flutt aftur eftir langa dvöl í Danmörku. Vinnan mín er mitt helsta áhugamál, en önnur eru jurtir, matseld, andleg iðkun og málefni og lestur.

www.draumafaeding.net 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband